Saturday, August 28, 2010

Hejsan!

I gær var stor dagur hja okkur Bjøgga. Loksins var komid ad thvi ad reyna vid draumaleidina sjalfa, Vestpillaren a Presten. Presten er voldugur støpull sem stendur ut ur Festvågstind. Sudurhlidin visar ad sjó til sudurs og er einstaklega formføgur. Vestpillaren var fyrsta leidin sem klifin var a tindinn arid 1978. Tindurinn er 467 metra har og 11 klifurspannir, thær erfidustu norskar 6. gradur (5.10a/b). Ferd upp Vestpillaren er thvi alvarlegt verkefni og eins gott ad vera vel undirbuinn. Vid Bjøggi vorum gíradir i slaginn eftir andlegan og likamlegan undirbuning sidustu viku.

Klifrid hofst klukkan halftiu, vedur var gott en leidin enntha i skugga. Fyrstu spannirnar gengu vel tho ad óneitanlega væri sma skjalfti i manni. Thegar fyrsta 6. spønnin var yfirstadin jokst sjalfstraustid og vid forum ad hafa fulla tru a okkur i thetta verkefni. Eftir ad solin for a skina a klettinn og okkur ad hlyna vard klifrid hreinn unadur. Spannirar klarudust ein af annari, thar a medal hin tilkomumikla "slanting corner" spønn sem er klifrud i hreinu sári eftir risastora fløgu sem fallid hefur ur veggnum.

Sjø timum og fimmtiu minutum eftir af vid løgdum af stad skridum vid upp a topp, vatnslausir, threyttir og svangir en alsælir. Vedrid og utsynid a toppum var olysanlegt og thad hefdi ekki verid hægt ad má mongolitaglottid af okkur med slípirokki.

Nidurferdin var kapituli utaf fyrir sig, brølt eftir hryggjum med snarbratt fall a bada bóga. Sissi tok svo a moti okkur nidri vid veg med Mackøl og Sørlandschips. Snillingur! Eftir hatidarkvøldverd sem samanstod af grilludum pulsum og kartøflumus letum vid threytuna lida ur okkur vid eldinn adur en vid ultum inn i tjald.

Vid forum rolega af stad i morgun thratt fyrir vedurblidu. Uppur hadegi keyrdum vid yfir i Pianokrakken thar sem leidirnar "Applecake arrete" og "Lys og skugge" bidu. Sissi, sem hafdi att nadugan dag i gær fekk ad byrja a hvassa endanum, enda vid Bjøggi nett trénadir i skrokknum eftir atøk gærdagsins. Eftir ad hafa kyngt eplakøkunni var tekin samhljoda akvørdun um ad liggja frekar i solbadi vid sjoinn en ad klifra meira. Renndum svo inn i Svolvær til ad taka støduna a kebabframreidslu nordan vid heimskautsbaug. Áhugavert...

Senn lidur ad leidarlokum hja okkur, spa morgundagsins er god en svo gæti farid ad rigna. Vid reynum ad nýta thurrkinn a morgun betur en i dag.

Hilsen fra Norge

Skabbi og co.

3 comments:

  1. Til lukku með afrekið strákar! Þið eruð megamassar:)

    ReplyDelete
  2. Gaman að fylgjast með ferðalaginu ykkar. Til hamingju með Presten.

    ReplyDelete
  3. Vá þetta hefur verið meiriháttar! Til hamingju með þetta drengir. Þetta virðist frekar magnað svæði.
    Hlakka til að heyra fleiri sögur og sjá myndir.

    kv. Berglind

    ReplyDelete